†R.I.P. Halla†
14.10.2006 19:00:53 / helena

Ljóð eftir Kittý:**

mér fannst þetta svo fallegt ljóð og varð að setja það hérna..en ætla að fara að lifna aftur við á þessari síðu, svo fólk geti fylgst með hvað við stelpurnar erum búnar að vera að bralla uppá síðkastið ...en þetta ljóð kemur frá Kittý á síðunni www.blog.central.is/blondes

 

My Heart Splits Open...

Have you ever felt like the half of you was missing?

Have you ever tried to fill the holes she left behind?

Have you ever tried to run fast from the future?

Wanna stay here hoping, or go back fixing, no moving on in this life anymore.

 

Since you've been gone, my heart's been frozen

Standing here with nothing so my whole life is frozen

In a split second my heart splits wide open

feeling so damn emty with your laughter not within.

 

There's no point in moving on without you

Without you I´m nothing, without you I´m Zero.

In a split second my heart splits wide open

there's nothing here to do exept just wait for you my Hero

 

My heart splits open cause I feel like you left me

Angels flew away with you, far away from were we'd be

feels impossible to say goodbye to you after all this time

hard to let you go after 8 years of being mine!

 

I´ll never forget you Halla...never ever ever!!

You'll allways be here deep inside my heart

Just do it for me, never ever leave me!

In loving memory of my best friend, she chose to be free...

Höfundur : Kittý


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 23:08:15 / helena

...

hæjj...það er búið að vera mjög langt síðan við blogguðum enda sögðum við að við ætluðum í hlé með þessa síðu...þessi tími hefur verið sá erfiðasti sem við allar höfum nokkurtíman upplifað og er þessi sársauki svo mikill og erfitt að höndla...við erum búnar að vera mikið saman eftir þetta og sýndi það á þessum tíma hver var góður vinur. Við stelpurnar höfum farið að heimsækja foreldra hennar höllu og eru þau mjög sterk og er voðalega þægilegt að vera í kringum þau því þau sýna hvað þau eru sterk. Við stelpurnar ákváðum að við ætluðum ekki að standa algerðalausar og gera ekki neitt í málinu með þessa gangbraut og ákváðum við að við ætluðm að fá hraðarhyndrun og vildum að þetta yrði ekki bara gleymt mál... og ef þið hafið verið að fylgjast með okkur þá vitiði að okkur tókst það..það var sett upp hraðarhyndrun og stærri gangbraut... einnig ákvað bæjarstjórinn að taka allan garðabæ í gegn og gera hann að betri og öruggari stað. Við viljum þakka öllum sem studdu okkur á þessum tíma og takk fyrir allar skoðanir sem þið skrifuðuð....við stelpurnar ákváðum að við vildum ekki missa öll sambönd eftir skólann svo við gerðum allar saman síðu ...á þessari síðu erum við allar...stelpurnar sem vorum með höllu á næstum hverjum degi, ef ykkur langar að kíkja á hana þá er slóðin www.blog.central.is/-girlies. Rubiaz mun kanski halda áfram en við vildum bara láta vita að við erum að jafna okkur og að við náðum okkar takmarki með að fá hraðarhyndrun...

kveðja Rubiaz:**


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.02.2006 15:35:52 / helena

hvíldu í friði†

Það er satt. Því miður er Halla farin frá okkur. Hún lést á fimmtudaginn, 8 dögum eftir slysið. Þetta eru búnir að vera hræðilegir dagar fyrir okkur allar og alla aðstandendur og bara alla þá sem þekktu Höllu. Takk fyrir góða mætingu á minningarathöfnina í gær og við viljum þakka öllum sem hafa vottað okkur samúð. Við viljum einnig segja að við samhryggjumst foreldrum hennar og bróður innilega.. við eigum bara ekki orð til að lýsa því... samhryggjumst einnig öllum vinum hennar og ættingjum og bara öllum sem þekktu hana. Að lokum viljum við segja að við munum aldrei gleyma þér Halla. Þú ert og verður alltaf hjá okkur, við elskum þið óendalega mikið ástin okkar:**(K)

hvíl þú í friði:*

Við í Rubiaz höfum ákveðið að draga okkur í hlé með þessa síðu.

takk fyrir stuðninginn:*


» 82 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 14:13:53 / helga

takk:)

fyrir hönd okkar allra stelpnanna og örugglega fjölskyldu höllu og annara vina þá takk fyrir allan stuðninginn og bænirnar! það er fullt af fólki útí bæ sem að halla þekkir ekki neitt að biðja fyrir henni:D takk æðislenga þið eruð frábær:D

kíkið á þennan link á barnaland.is!:| hef aldrei sé svona langa umræðu:

http://barnaland.is/messageboard/messageboard.aspx?advid=3463462&advtype=52&page=2


» 349 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 17:19:49 / audur

Nýtt og ekki nýtt af Höllunni okkar :)

Líðan Höllu er stöðug, og í rauninni ekkert búið að breytast síðan í gær, hún er ekki komin úr lífshættu ennþá, en hún er stöðug og það er mjög gott ! : ) : )

kv Auður


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 17:14:49 / audur

NÝTT!

Jæja, Líðan Höllu er stöðug, en annars er ekkert nýtt í fréttum, það er samt spurning með að reyna að vekja hana á næstu þremur dögum, en það er ekki víst, en líðan hennar er stöðug!:)

og stelpur..., ég hringi alltaf á sama tíma í mömmu hennar Höllu , eða um 5-6 leytið, þannig að þið getið alltaf búist við fréttum hingað inn á þeim tíma, sem eru vonandi að  verða betri og betri! :)

kv Auður


» 10 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 18:24:40 / audur

ENN FLEIRI FRÉTTIR!!

ÉG var að enda við að töla við mömmu hennar Höllu og aðgerðin gekk bara mjög vel! Mamma hennar er samt ekkert búin að sjá hana, en læknarnir gátu gert mjög vel að sköflungnum hennar og það kom í ljós að hún var líka lærbrotin , en læknarnir löguðu það líka, Henni verður samt haldið sofandi í nokkra daga í viðbót, annars eer ekkert meira núna.

vonandi er tíminn bara með okkur :)

kv auður


» 11 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 13:46:21 / audur

NÝJAR FRÉTTIR AF HÖLLU!

Þetta er Auður með nýjar fréttir af Höllunni okkar =)

Halla er núna í aðgerð, þrýstingurinn í heilanum og líkamanum var allur svo flöktandi að það þurfti að skera hana upp til að létta á honum, svo að það vonandi skánar :), Svo ætluðu læknarnir að reyna að laga sköflunginn hennar í leiðinni.  Annars er hún núna í aðgerð og mjög lítið búið að breytast, mamma hennar sagði mér að hringja aftur í dag því að þá væri meira að frétta, svo að stelpur þið verðið að passa að hringja ekki, því það er allt of mikið ef við förum allar að hringja :) Ég læt svo meira inn þegar ég veit meira :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 13:48:50 / helga

hæb

ég er eigilnega ekkert búin að frétta neitt nýtt... nema það er ekki gott að heimsækja höllu núna a´spítalann af því að það er verið að létta á svæfingunni og hækka hitastigið til að hún fái afutr eðlilegan hita. það getur víst þýtt að henni versni pínu í smá tíma en það er bara eðlilegt. ég reyndi að ná í mömmu hennar áðan en hún svaraði ekki þanngi að ég ætla að reyna að ná í hana aftur í kvöld:P ef þið eruð búin að frétta e-ð nýtt nenniði þá að hringja í mig eða senda emil á helga228@hotmail.com?? takk:)


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.02.2006 11:33:48 / helga

Um slysið og líðan Höllu

 Miðvikudaginn 15. feb gerðist hræðilegt slys. Það var keyrt á Höllu. Hún hafði verið í skólaheimsókn í MH og var víst samferða Jóni Inga e-ð áliðeiðis heim til sín. Þegar hún var nýbúin að segja bæ við hann labbaði hún yfir gangbrautina á Bæjarbrautinni rétt hjá húsinu sínu. Þá var keyrt á hana og hún missti strax mðvitund. Bílstórinn var 18 ára strákur sem blindaðist af sólinni. Þennan dag var sólin mjög lágt á lofti þannig að þeir sem keyrðu Bæjarbrautina blinduðust alveg. Jón Ingi sá þetta gerast og hringdi á neyðarlínuna. Elín Ósk sá þetta líka og ég veit að það var fleira fólk sem hringdi líka á neyðarlínuna. Þrír hjúkrunarfræðingar sáu slysið og komu hlaupandi þannig að hún fékk bestu fyrstu hjálp sem völ var á.Svo kom sjúkrabíllinn og fór með Höllu uppá spítala. Halla fékk höfuðáverka, mjaðmagrindarbrotnaði og sköflungurinn er margbrotinn. Hún var sett í kælingu og öndunarvél á gjörgæslu. Henni er núna haldið sofandi í öndunarvél og líkamshitanum haldið í lágmarki útaf höfuðáverkunum til þess að það sé sem minnst álag á heilann og hann geti jafnað sig. Hún er bólgin á heila en myndirnar sem hafa verið teknar núna seinustu daga eru jákæðar. Ég talaði við mömmu hennar Höllu áðan og hun sagði að það væri aðeins byrjað að draga úr svæfingunni og að það ætti að fara að hækka líkamshitann uppí eðligegan hita:). Þetta eru alveg frábærar fréttir og Halla er alveg ótrúlega sterk og dugleg af því að það eru aðeins tveir dagar síðan slysið varð.   Hún er ekki enn þá alveg komin úr lífshættu en ástandið er stöðugt og allt sem hefur komið fram hingað til hefur verið jákvætt. Hins vegar mun hún verða lengi að jafna sig og það eina sem við getum gert núna er að biðja fyrir henni og sýna henni, fjölskyldu hennar og öllum sem koma að slysinu skilning og að við stöndum með þeim. Ég veit að það er fólk út um allan bæ að biðja fyrir henni, fólk sem hún þekkti kannski ekki neitt, og það er í gangi bæna sms. Við verðum bara að bíða og vona að allt fari vel.

Fimmtudagurinn var erfiðasti skóladagur sem ég hef upplifað. Mamma hennar Kittýjar sagði mér þetta á leðinni í skólann. Við vorum sendar úr tíma og niður á skrifstofu af því að við voru í sjokki. Reyndar var allur skólinn í sjokki og lítið talað um annað en slysið. Svo eftir skóla var bænastund uppí kirkju þar sem við báðum fyrir Höllu. Foreldrar hennar og bróðir komu og lögreglan og fullt af kennurum og fullt af krökkum úr skólanum. Svo fórum ég, Kittý og Auður aðeins heim til Kittýjar og fórum svo uppá spítalann til Höllu. Það var skrýtið að sjá hana svona en ég veit að hún er með bestu mögulegu lækna og hjúkrunarfræðinga sem hún getur haft og hún er í góðum höndum. Eins og ég sagði áðan verðum við bara að standa sterk saman og biðja fyrir henni og senda jákvæða strauma:)

Ég læt ykkur vita um leið og ég frétti eitthvað fleira.

kveðja
Helga:*

» 12 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 16:01:16 / helena

valentínusardagurinn

hæjj... jamm svo það er valentínusardagurinn í dag:D það verður ekki mikið að gera hjá mér því ég verð ein:(:cry: hehe en ég bara vona að ég verði það ekki næsta:P en nei :O ég er með eitt valentín hehe hún sirrý ætlaði að vera mitt valentín:D og svo fékk ég miða frá leyniaðdáanda í dönsku hehe og svo fékk ég eða sóley miða í skápinn okkar í morgun frá einum í skólanum og við erum 100% vissar að það var vinur hans sem lét hann þangað en við vorum báðar alveg what?:'D er sammt meiri líkur að það hafi verið til sóleyjar heldur en til mín.. :D:'D en ég er að fara að fara til skotlands eftir nokkra daga þannig að helga verður að vera með síðuna ein í smá tíma:P því ég held að ég geti ekki bloggað þarna úti:S en ég óska öllum til hamingju með daginn:D elska þennan dag:P

-Helena:**

Love        Love         Love


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 12:04:04 / helga

helgin!

jább.. þetta var svosem ágæt helgi miðað við seinustu:S.. hehe var reyndar að vinna á fös til 21 en svo fórum ég og elfar í tölvuna og ég var að bulla í fólki inná hans msni haha geðveikt findið:'D!! kom svo heim rétt fyrir 10 og fór þá beint í hafdísar ammæli:D hehe gaf henni mcdonaldsblörðu og 1000 kall;)! þetta var alveg crazy ammæli.. stelpurnar alveg að missa sig förum ekkert nánar útí það:S! það voru teknar fullt af myndum en sem betur fer var ég ekki með mína myndavél af því að þá þarf ég ekki að bera ábyrgðina á að setja þessar myndir á netið:S.. það er svo leiðinlegt! eins og þið hafið eflaust öll tekið eftir þá eru allar myndirnar á þessari síðu helenu að þakka:( sry helena mín skal reyna að bæta mig:(! en jam eftir ammælið fór ég bara hjem:)..

so í gær fór ég í bíó með örnu:D! fórum á final destenation 3! hun var geðveikt spennandi en samt líka soldið creepy:S:P.. semsagt mjög góð mynd;)! ojj það var geðviekt ógislegt að þegar við komum útúr bíóinu þá settumst við í sófann þarna við hliðiná símasjálfsölunum og þá byrjaði einn að hringja:S! haha við svöruðum og það var bara e-ð símaat og svo geðveist þetta sama aftur en svo hringdi aftur í 3. sinn og einvher sagði okkur að ´þeir væru að horfa á okkur og bað okkur um að fara úr sófanum!:S sjitt etta var geggt scary!:S:/

jam svo í dag þarf ég víst að læra:( úff er að fara í 4 próf í næstu viku! þarf að lesa 103 bls bók á dönsku og svo er próf úr henni á þri::evil:! svo verður líka lokaprófið í íslensku 103 fjölbrautaáfanganum:( úr u.þ.b. 200 bls bók! og svo er lokaprófið úr 2. og 3. kafla í nátt, erfðir og þróun og svo er stórt enskupróf :( ég á eftria ð deyja í þessari viku:(

en jam er að huxa um að reyna að byrja e-ð á þessu:(

bæbæ;*


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.02.2006 14:22:20 / helena

Ammæli!!

Hann Jói á afmæli í dag orðin stór strákur:'D hehe en ég er að fara að til hans bráðum og get ekki beðið :D hehe til hamingju með afmælið :**

ji.jpg


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.02.2006 12:32:26 / helena

það var 4 sætið:D

hæjj...ég vil fyrst of fremst koma því fram að það var smááá miskilingur að hún íris lenti ekki í 5 sæti hún lenti í 4!!:D sem er enþá betra:D þannig ef að einhver af þessum sem lentu í fyrstu þrem sætunum hefðu ekki tekið þátt þá hefði íris komist áfram:O:D en ég held því ennþá fram að íris átti að komast áfram því að þetta var svo ótrúlega flott hjá henni og sviðsframkoman og alles var fullkomið:D en það eru að far að koma myndir frá því á síðuna ...:D en jamm í gær var afmælið hennar hafdísar gett stuð..:P til hamingju með ammælið elska n mín:**:** það eiga líka eftir að koma myndir úr afmælinu:P

Helena:**


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 22:19:41 / helena

happy birthday to you

Hún á afmæli í dag þessi frábæri snillingur:D hún hafdís átti 16 ára afmæli og er held ég að fara að byrja í æfingarakstri:D lucky "!#$"% hehe en jamm þessi elska var fædd fyrir 16 árum:D pælið í því;)

-til hamingju ástin mín(K)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6